
Hópnámskeiðin hjá Facefit
Hópnámskeiðin hjá Facefit, hversu frábært 
Facefit leggur áherslu á að viðskiptavinum líði vel og finni sig í rólegu umhverfi þar sem sjálfsumhyggjan fær að njóta sín.
Námskeiðin snúast ekki bara um að þjálfa andlitsvöðvana, það er svo margt annað sem er farið yfir hvað varðar til að ná þeim árangri sem óskað er. Að gera æfingar eitt og sér er ekki nóg, þess vegna býður Facefit upp á námskeið og einkaráðgjöf.
Draumurinn hefur verið frá byrjun að vera með hópþjálfanir og þá helst í kósí heitum sal. Við gerðum prófraun í samstarfi við Reebok með frábæra aðstöðu í heitum infrarauðum sal, en infrarauð ljós hafa margvíslegan ávinning fyrir líkamann hvað varðar ónæmiskerfið og allskonar gigt, innfrarauð ljós auka líka brennsluna í líkamanum, þannig að við erum að slá margar flugur í einu höggi með því að æfa í svona sal.
Ég þrái að deila þessu frábæra æfingarkerfi til sem flestra, minn draumur er að þú og allir sjái hversu frábært er að þjálfa vöðvana í andlitinu og þrái að koma áfram fróðleik og öllu sem hjálpar að vinna á móti öldrun til að ná sem bestum ávinning í andlitsmótun hjá Facefit.
Hóptímar eru ekki í boði eins og er.
Kær kveðja Ragnheiður