Fréttanetið
Prófaðu þennan maska – þú munt strax finna mun – Fréttanetið (frettanetid.is)...
Prófaðu þennan maska – þú munt strax finna mun – Fréttanetið (frettanetid.is)...
5 atríði sem hjála þér að vera stöðugur, að standa við skuldbindingu þína gagnavart sjálfri/um þér
Af hverju byrjaðir þú á andlitsrækt í fyrsta lagi? Hver voru/eru markmið þín og hvatning.
Kannski viltu yngjast um nokkur ár, verða ferskari og með glóandi silkimjúka fallega húð, tóna andlitið, eða líta bara hraustlega út og gera eitthvað sem þú veist að er gott fyrir andlitið, spegilinn og sálina í leiðinni. Hver sem ástæða þín er, skrifaðu það niður og hafðu það einhvers staðar sem þú getur séð það á hverjum degi, helst strax á morgnana (lítill miði á spegilinn, á náttborðinu, við fataskápinn…) Minntu þig á hvernig andlitsrækt hjá Facefit lætur þér líða og hvernig facefitþjálfunin getur hjálpað þér að ná draumum þínum.
Ein besta leiðin til að halda áætlun þinni og koma Facefit æfingum í rútínuna þína, er að skipuleggja fram í tímann, skuldbinda þig og hafa æfingarnar í forgang.
Vertu með ákveðnar hugmyndir við hvaða tækifæri þú ætlar að gera ákveðnar æfingar, skrifaðu það niður og settu í dagbókina þína fyrir hvern dag og haltu þig við áætlun þína. Komdu fram við þig með virðingu og bókaðu fund t.d. ,,kl. 9:00 -9:10 Facefit fundur við Ragný,,….
Settu það í dagatalið þitt, settu áminningu og segðu fjölskyldu þinni og vinum frá því að þú ert upptekin á þessum tíma 😊. Gerðu það að vana og lofaðu þér að hlakkar til á hverjum degi.
Facefit andlitsrækt snýst um fjölbreytni og sköpunargáfu.
Þegar þú hefur lært og mætt á fleiri en eitt námskeið, hefur þú val um tugir andlitsæfinga sem hægt er að raða mismunandi og einnig sniðugt að vera með mismunandi rólega instrument músk.
Möguleikarnir eru óþrjótandi, svo ekki vera hrædd/ur við að gera tilraunir og prófa nýjar æfingar / rútínur. Skoraðu á sjálfan þig, komdu sjálfri/um þér á óvart og hafðu gaman, njóttu að hafa sjálfstjórn og að sjá andlit þitt í speglinum verða ferskara og meira geislandi. Þér leiðist aldrei með Facefit.
Facefit er meira en bara að þjálfa vöðvana í andlitinu. Samfélagið Facefit er leið til að lifa og læra að elska sjálfan þig en betur. Og þú ert ekki ein/n í þessu ferðalagi.
Þú ert hluti af samfélagi sem er á sömu braut og þú. Þú getur tengst fólki í Facefit á netinu, deilt sögunum þínum, spurt spurninga, fengið stuðning og fagnað árangri þínum.
Þú munt finna innblástur, hvatningu og vináttu í samfélaginu með Facefit.
Andlitsrækt snýst ekki um fullkomnun, engin þörf á að við séum eins og dúkkur. Facefit andlitsrækt snýst um framfarir.
Facefit snýst ekki um að bera þig saman við aðra. Facefit snýst um að vera sátt við sjálfan þig eins og þú ert. Facefit andlitsrækt snýst ekki um að refsa sjálfum þér, snýst ekki einungis um að einblína á hvað er að og hvað mætti vera betra og snýst ekki heldur um að barma sér ef þú ert ekki að halda rútínu þína. Nei þú ætlar að elska sjálfa þig og ætlar að elska spegilinn sem aldrei fyr, þú ætlar að hrósa þér og gleðjast, vera jákvæð og sjá möguleikana í því að láta þér líða betur.
Mundu að þú ert að gera þetta fyrir þig og engan annan. Þú ert að gera þetta vegna þess að þú elskar sjálfan þig, ekki af því að þú hatar sjálfan þig. Þú ert að gera þetta vegna þess að þú átt það skilið að líða vel og líta vel út. Vertu því mild/ur, þolinmóð/ur og vertu stolt/ur af sjálfri/um þér. Þú getur-þú ætlar-þú vilt.
FRÍ KENNSLA Á NETINU Fylgstu með hvenær næsta fría net-kennslan okkar verður, skráðu þig á biðlista strax. Biðlisti: Sendir nafn síma og netfang, segist vilja fara á biðlista í frían tíma. á ragny@facefit.is Ef þú ert að hugsa eins og ég, þá ertu að huga að því hvernig þú ætlar að fara inn í nýtt ár og hvernig þú ætlar að tríta líkama þinn á nýju ári, bæði hvað varðar mataræði, æfingar, útiveru og allt sem hefur jákvæð áhrif á heilsu og útlit. Við viljum oft gleyma andlitinu hvað varðar æfingar. En þetta árið ætlar þú ekki að láta andlit þitt vera útundan. Þess vegna byrja ég nýja árið með því að bjóða þér í frían tíma í andlitsrækt, hversu flott ! Og ekki gleyma því að það...
Það sem að Neo Lifting andlitsnudd getur gert fyrir þig, er óendanlegt ,, Ég er með skerta taug í andliti svo kölluð þríburataug eða þrenndartaug sem er skyntaug fyrir andlitið og hluta höfuðs. Efstu hálstaugarnar fara inn til mænunnar og þar tengjast þær kjarna þrenndartaugar. Verkirnir eiga upptök sín í hálsinum ,, Mér leið svooooo vel að þú getur ekki ýmindað þér það. Mamma gapti þegar hún sá muninn á andlitinu á mér eftir nuddið. Það lang lang besta og mesti munurinn sem ég fann var að þú náðir verknum og spennunni úr andlitstauginni minni, stanslausi verkurinn fór, bjúgurinn í andlitinu fjaraði út og þegar þú nuddaðir aftan á hálsinum opnaðist eitthvað flæði hjá mér, hugsanir mínar urðu skýrari. Ég fór bara að gráta af þakklæti....
Var boðin í viðtal á Bylgjunni. Skemmtilegt viðtal og frábært að sjá og heyra að karlmenn eru ekkert minna spenntir fyrir andlitsrækt. Heimir og Gulli mjög forvitnir og spenntir. Afritaðu og njóttu https://www.visir.is/k/10151cab-9499-4f33-9cd2-8ef1b8dea058-1676623621948 -------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------- Viðtal í Síðdegisútvarpinu á Rás 2 BYRJAR Á MÍNÚTU 4 https://www.ruv.is/...
Valentínusardagur og því tilvalið að fagna ástinni, hvort sem það er með þeim sem þér þykir vænt um, maka þínum eða þinni sjálfsumhyggju. Langar aðeins að skoða hér sjálfsumhyggjuna eða sjálfsástina. Sjálfsumhyggja þýðir líka sjálfsást, við eigum að elska okkur sjálf og þess sem lífið hefur gefið okkur, þakka fyrir allar þær reynslur, raunir og gjafir sem lífið færir okkur. Reynslur, raunir og gjafir er í raun tækifæri fyrir okkur að taka út meiri þroska. Að elska aðra eins og sjálf okkur eins og segir í stóru bókinni okkar ,, elska skaltu náungann eins og sjálfan þig,, er dýrmætur fjársjóður ef/þegar við náum því og örugglega eitt það erfiðasta verkefni sem við fáum í hendurnar á lífsleiðinni. Ein leiðin til að elska okkur sjálf en meir er...
Hópnámskeiðin hjá Facefit í heitum infrarauðum sal, hversu frábært :) Facefit er að byrja sín fyrstu skref í samstarfi við Reebok, með yndislega aðstöðu þar, bæði fyrir Einkaþjálfun, einkaráðgjöfina og Neo Lifting andlitsnuddið. Róleg stöð, kósí, vinaleg stöð, þess vegna var nákvæmlega Reebok í Faxafeni fyrir valinu, því að Facefit leggur áherslu á að viðskiptavinum líði vel og finni sig í rólegu umhverfi þar sem sjálfsumhyggjan fær að njóta sín. Námskeiðin snúast ekki bara um að þjálfa andlitsvöðvana, það er svo margt annað sem er farið yfir hvað varðar til að ná þeim árangri sem óskað er. Að gera æfingar eitt og sér er ekki nóg, þess vegna býður Facefit upp á námskeið og einkaráðgjöf. Draumurinn hefur verið frá byrjun að vera með hópþjálfanir í kósí heitum sal...
Facefit bíður upp á Neo Lifting andlitsnudd sem er snilldin ein með andlitsmótunar æfingum. ÞÍN ANDLITSLYFTING Velkomin í sogæða og andlitsnudd hjá Facefit. Gefur þér stórkostlega vellíðan og andlitslyftingu án þess að þín fallegu persónueinkenni hverfi. Nýjustu rannsóknir hafa sýnt að líðan og tilfinningar eru oft háð líkamstjáningu og þess vegna gefur brosið betri líðan. NeoLifting hjálpar til við að létta á streitu líkamlega og andlega, svo þú slakar betur á og lærir að beita tjáningu þinni á jákvæðari hátt. Neo Lifting veldur engum aukaverkunum eins og margar aðgerðir geta gert eins og skemmdum á taugakerfinu, sýkingum og fleiru. Neo Lifting snýst um að þú eignist bestu útgáfuna af sjálfum þér á náttúrulegan hátt. Neo Lifting gefur góða slökun, tónar andlitið, gefur mýkri húð, dregur úr fínum línum. Neo Lifting...
AÐ VINNA NÁIÐ MEÐ MÉR Í 3 MÁNUÐI. Stuðningur, mikil nálgun og hvatning í 3 mánuði Góð aðferð fyrir þig að koma andlitsþjálfun inn í þína rútínu á góðum tíma, maraþon plús langhlaup að breyttum lífsstíl. Frábært markvisst ferðalag með Facefit andlitsmótunar kennara þér við hlið alla daga í 3 mánuði. Þetta æfingakerfi er bara snildin ein. Hér getur þú skellt þér í andlitseinkaþjálfun hjá Facefit og eignast fjársjóð fyrir framtíðina og öðlast ótrúlegan árangur á styttri tíma. Hittingar og mikil nálgun í Facefit í 3 mánuði mun breyta þínu lífi, ekki bara andliti þínu heldur öllu lífi þínu, því um leið og við brosum meira, brosum oftar framan í spegilinn, líður sálinni betur og betur, þinn andlegi maður mun taka flug sem aldrei fyr. Virkilega spennandi að kafa og...
Kollagen – Sítróna er full af andoxunarefnum sem verndar frumurnar gegn skemmdum, mikilvægt fyrir byggingu á efni sem hefur áhrif á framleiðslu kollagen. Kollagen er eitt helsta byggingarprótein líkamans, kallað oft framleiðslulímið þar sem kollagen orðið er komið úr grísku og er samsett af kolla sem merkir lím og gen sem vísar á framleiðslu. Glóandi húð – Sítrónan er má segja afoxandi tonic, hreinsar allan líkamann í gegnum lifur sem styður gallframleiðslu og flæðið, hjálpar að hlutleysa eiturefni og úrgang. Sítróna er líka þvagörvandi sem dregur úr bjúg. C-vítamínið í sítrónu hefur frábær áhrif á húðina, rannsóknir benda til að C-vítamín verndi húðina gegn skaðlegum áhrifum útfjólublárra geisla A og B og verji hana þar með gegn ótímabærri öldrun og hrukkum. Melting - Sítróna...